Eitt stig og Harvard eftir tímabilið

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í baráttu við Önnu Maríu Baldursdóttir í …
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í baráttu við Önnu Maríu Baldursdóttir í leik gærkvöldsins. mbl.is/Kristinn Steinn

Þróttur og Stjarnan skildu jöfn, 1:1, í 3. umferð í Bestu deild kvenna í gærkvöld. Þróttur situr í efsta sæti það sem komið er en Stjarnan í 5. sæti þó það segi lítið svona snemma móts. 

„Mér fannst við spila vel og við héldum vel í boltann en við vorum ekki nægilega ákveðnar á loka þriðjungnum. Við hefðum getað klárað þetta betur, þetta var fínt, bara leiðinlegt að geta ekki nýtt sénsana okkar,“ sagði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, framherji Þróttar, við mbl.is eftir leikinn.

Þróttur er nú í efsta sæti deildarinnar, eftir þrjár umferðir, með sjö stig.

„Mótið byrjar mjög vel hjá okkur en það er pirrandi að fá ekki þrjú stig í dag. Við förum svipað inn í alla leiki og við vitum að allir leikir eru erfiðir á sinn hátt. Við erum búnar að fara djúpt í það sem við ætlum að gera í leiknum þannig við nálguðumst þetta ekki öðruvísi en önnur lið, við ætlum okkur alltaf að vinna.“ 

Bandaríski háskólinn Harvard deildi mynd í gær til staðfestingar á því að Ólöf Sigríður og Írena Héðinsdóttir Gonzalez úr Breiðabliki væru báðar á leið þangað eftir tímabilið. Þar eru nú þegar Blikakonurnar Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Hildur Þóra Hákonardóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert