KV náði í sitt fyrsta stig í 2. deild karla í fótbolta í kvöld er liðið gerði jafntefli við Hauka á heimavelli í 2. umferðinni, 1:1.
Fannar Óli Friðleifsson kom KV yfir á 21. mínútu, en Kári Eydal jafnaði á lokamínútu fyrri hálfleiks og var ekkert skorað í seinni hálfleik.
Haukar eru nú með fjögur stig, eftir 4:1-sigur á Þrótti úr Vogum í 1. umferðinni. KV tapaði fyrir KFG, 2:5, í 1. umferðinni.