Fjölnir og Þróttur úr Reykjavík skildu jöfn, 3:3, í ótrúlegum leik í 2. umferð 1. deildar karla í fótbolta í Egilshöll í kvöld.
Máni Austmann Hilmarsson kom Fjölni yfir strax í upphafi leiks, en Kostyantyn Yaroshenko sá til þess að staðan í hálfleik var 1:1.
Fjölnismenn voru sterkari framan af í seinni hálfleik og Júlíus Mar Júlíusson kom Fjölni í 2:1 á 67. mínútu og þremur mínútum síðar virtist Hákon Ingi Jónsson vera að tryggja Fjölni sigurinn með þriðja markinu.
Þróttarar gáfust ekki upp, því Hinrik Harðarson minnkaði muninn í 3:2 á 89. mínútu og Ágúst Karel Magnússon jafnaði í uppbótartíma og þar við sat. Fjölnir er með fjögur stig eftir tvo leiki og Þróttur fékk sitt fyrsta stig.
Njarðvík og Ægir mættust í nýliðaslag í Reykjanesbæ og urðu lokatölur 2:2. Ivo Braz kom Ægi yfir strax á 3. mínútu, en Rafael Victor jafnaði á 30. mínútu.
Anton Fannar Kjartansson kom Ægi aftur yfir á 43. mínútu og Marc McAusland, fyrirliði Njarðvíkur, fékk beint rautt spjald á 45. mínútu. Þrátt fyrir það jafnaði Oumar Duouck á 56. mínútu og þar við sat.
Njarðvík er með tvö stig, á meðan stigið var það fyrsta sem Ægir fær í 1. deild í sögu félagsins.