Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar í fótbolta, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann fyrir að toga í hár hinnar bandarísku Caeley Lordemann hjá ÍBV, er liðin mættust í 2. umferð Bestu deildarinnar.
Dómarinn Þórður Þorsteinn Þórðarson sá ekki atvikið á meðan á leik stóð, en Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, sendi aga- og úrskurðarnefnd KSÍ erindi vegna málsins.
Stuðst var við myndbandsupptökur, þar sem atvikið var hvorki tekið fyrir í skýrslu dómara, né eftirlitsmanns.
„Í tilvitnuðu atviki sýnir leikmaður Stjörnunnar, Anna María Baldursdóttir, af sér óíþróttamannslega og hættulega hegðun er hún togar í hárið á Caeley Michael Lordemann leikmanni ÍBV. Atvik þetta hafi hvorki dómari né aðstoðarmenn hans séð í leik Stjörnunnar og ÍBV í Bestu deild kvenna þann 2. maí sl.
Hefur aga- og úrskurðarnefnd ákveðið, með vísan til ákvæða 5.2. og 5.3 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál, að úrskurða Önnu Maríu Baldursdóttur, leikmann Stjörnunnar, í tveggja leikja bann í Íslandsmóti vegna atviksins í framangreindum leik, samkvæmt 12. gr. sömu reglugerðar. Leikbann Önnu Maríu tekur gildi kl. 12 á hádegi næsta dag frá birtingu á úrskurði þessum,“ segir m.a. í úrskurðinum.
Stjarnan verður því án fyrirliða síns í heimaleik gegn Val þriðjudaginn 16. maí og útileik gegn Tindastóli viku síðar.