Sandra María Jessen, framherji og fyrirliði Þórs/KA, var besti leikmaðurinn í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Sandra var í aðalhlutverki hjá Akureyrarliðinu þegar það sigraði ÍBV, 1:0, í Vestmannaeyjum. Hún fékk þar tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína en Sandra skoraði sigurmarkið, skapaði sér bestu færi norðankvenna í leiknum, og svo var ein Eyjakvenna rekin af velli fyrir að brjóta á henni.
Sandra er 28 ára Akureyringur og hefur leikið með Þór/KA allan sinn feril með liðinu hér á landi. Hún var í fyrsta meistaraliði Þórs/KA árið 2012 og skoraði þá 18 mörk í deildinni, 17 ára gömul, og var markahæst í deildinni ásamt Elínu Mettu Jensen. Hún var fyrirliði meistaraliðs Þórs/KA 2017 og er markahæsti leikmaðurinn í sögu liðsins með 84 mörk í efstu deild, og sú fjórða leikjahæsta með 137 leiki.
Meira um Söndru og úrvalslið þriðju umferðar Bestu deildar kvenna má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.