Selfoss gerði góða ferð í Breiðholtið og vann 3:2-útisigur á Leikni úr Reykjavík í 1. deild karla í fótbolta í kvöld.
Staðan í hálfleik var 1:1, eftir að Daníel Finns Matthíasson kom Leikni yfir á 13. mínútu og Jón Vignir Pétursson jafnaði á 24. mínútu.
Selfyssingar komu af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn. Guðmundur Tyrfingsson kom Selfossi yfir á 50. mínútu og Valdimar Jóhannsson breytti stöðunni í 3:1 með marki á 59. mínútu.
Ólafur Flóki Stephensen lagaði stöðuna fyrir Leikni á 66. mínútu.
Afturelding vann sætan 1:0-sigur á Þór á Framvellinum í Úlfarsárdal. Gunnar Bergmann Sigmarsson skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.
Þá skildu Grindavík og Grótta jöfn í Grindavík, 0:0. Úrslitin eru vonbrigði fyrir Grindavík, sem vann sterkan 2:0-útisigur á ÍA í fyrsta leik og margir spá góðu gengi í deildinni í ár.
Afturelding er eina liðið í deildinni sem hefur unnið tvo fyrstu leiki sína. Vestri og ÍA eru einu liðin sem eru án stiga, en þau mætast á morgun.