Andri Rúnar Bjarnason var í miklu stuði í liði Vals í dag en Valur heimsótti KA á Akureyri í Bestu deildinni í fótbolta. Valur hélt uppi mikilli pressu á mark KA frá fyrstu mínútu og uppskar strax mark. Tvö í viðbót bættust við í fyrri hálfleik og var Andri Rúnar í hringiðunni í öllum mörkunum. Það þriðja skoraði hann sjálfur með bylmingsskoti.
Þótti tilhlýðilegt að heyra í Vestfirðingnum eftir leik en Valur vann 4:0 eftir að hafa bætt við marki á lokamínútu leiksins.
Maður bjóst við jöfnum leik hérna í dag en þetta varð allt of létt fyrir ykkur.
„Þetta var alla vega verðskuldaður sigur. Ég held að ég geti verið hreinskilinn með það. Þetta var frábær frammistaða frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Við stigum ekkert af bensíngjöfinni eftir fyrsta markið og hleyptum KA ekkert á lappirnar eftir að hafa byrjað svona vel. Vorum rólegir á boltanum og góðir í uppspilinu. Þetta var bara flottur fyrri hálfleikur og við hefðum alveg getað skorað fleiri mörk.“
Þið skorið einmitt strax á fyrstu mínútunni. Svo eruð þið bara í færum allan fyrri hálfleikinn. Þú ert náttúrulega framherji að Guðs náð og settir eitt glæsimark. Þú ert reyndar framherji sem er bestur með bakið í markið og sýndir það hér í dag.
„Hlutverkið mitt er að taka á móti boltanum og teygja dálítið á leiknum fyrir okkur og opna svæði í kring um aðra. Ég á að reyna að taka til mín og virkja aðra í kringum mig með spili. Svo einstaka sinnum næ ég að pota inn marki.“
Þetta var draumamark hjá þér í dag. Alvöru skot og kannski ekki alveg klassískt mark frá þér.
„Nei, en ég á nú einhver svona mörk. Menn gleyma því oftast að ég er með ágætis skotfót. Ég fékk ágætis tíma til að skjóta og nýtti mér það.“
Það var 3:0 í hálfleik og þetta mark gerði KA nær ómögulegt að koma til baka. Það var svo jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. Var skipunin eftir hálfleiksræðuna að spara krafta og bara komast vel frá leiknum?
„Nei, nei. Svona gerist bara oft í fótbolta þegar lið hafa þægilega forustu, Mér fannst við spila seinni hálfleikinn fagmannlega, fáum ekki á okkur mark, enginn meiddist. Það er að koma törn af leikjum og gott að geta klárað leikinn eins og við gerðum. Það var svo bónus að skora fjórða markið og vinna þá seinni hálfleikinn líka.“
Einhverjir myndu líka tala um að þið hafið fengið tækifæri til að hvíla leikmenn og taka þá snemma af velli.
„Það er alltaf kostur, að geta dreift álaginu og notað mannskapinn skynsamlega. Þeir sem eru að koma inn á í leikjunum okkar eru að skila 100% vinnu og þá er hægt að tala um að liðið okkar sé í ansi góðri stöðu“ sagði Andri Rúnar að lokum.