Vestri og ÍA mættust í 2. umferð 1. deildar karla í fótbolta í dag. Leikið var á Ísafirði og úr varð hörkuleikur, lokatölur 2:2.
Viktor Jónsson kom ÍA yfir á markamínútunni, þeirri 43. þegar hann skoraði með flottum skalla og leiddu Skagamenn þegar flautað var til hálfleiks.
Gustav Kjeldsen jafnaði fyrir heimamenn á 53. mínútu þegar hann skoraði með skalla af stuttu færi eftir sendingu frá Morten Ohlsen Hansen.
Það var skammgóður vermir hjá Kjeldsen því tveimur mínútum síðar fékk hann rautt spjald þegar hann sparkaði í höfuðið á Viktori Jónssyni, heimamenn einum manni færri.
Johannes Vall kom Skagamönnum aftur yfir á 63. mínútu þegar hann skoraði með góðu skoti eftir hornspyrnu.
Heimamenn náðu hinsvegar að jafna á 66. mínútu með sjálfsmarki frá Pontus Lindgren, leikmanni ÍA. Sergine Fall átti þá fyrirgjöf sem Lindgren skallaði klaufalega í eigið mark.
Jafntefli staðreynd og hvorugt lið sátt með niðurstöðuna.
Eftir leikinn er Vestri í 10. sæti með eitt stig og ÍA í því 12. sömuleiðis með eitt stig.
Mörkin úr leik Vestra gegn ÍA (Lengjudeild karla) pic.twitter.com/QvX9Z3JwnQ
— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 14, 2023