Grótta vann í dag 5:2-heimasigur á Aftureldingu í 1. deild kvenna í fótbolta.
Var fátt sem benti til þess að það yrðu lokatölur, því Hildur Karítas Gunnarsdóttir kom Aftureldingu í 2:0, með tveimur mörkum á fyrstu 21. mínútunni.
Grótta svaraði með fimm mörkum, en Hannah Abraham gerði tvö þeirra, Tinna Jónsdóttir og Margrét Lea Gísladóttir eitt hvor og eitt markið var sjálfsmark.
Afturelding, sem féll úr efstu deild, er aðeins með eitt stig eftir tvo leiki. Grótta, sem kom upp úr 2. deild, er með þrjú.