Lautarferð hjá Val á Akureyri

Valsmenn fanga marki í dag.
Valsmenn fanga marki í dag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Tvö af efstu liðunum í Bestu deild karla í fótbolta mættust í dag á KA-velli á Akureyri. KA tók á móti Val og bjuggust flestir við jöfnum og spennandi leik. Svo fór nú aldeilis ekki því að Valur hreinlega rúllaði yfir steingelda KA-menn allan fyrri hálfleikinn. Það má segja að Valur hafi afgreitt leikinn í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 3:0.

Leikurinn var rétt byrjaður þegar boltinn lá í marki KA-manna. Valur átti langa sendingu fram á Andra Rúnar Bjarnason. Boltinn datt niður við vítateig KA. Tvö skot buldu á varnarmúr KA og það seinna fór í gegn um múrinn. Adam Ægir Pálsson þrumaði boltanum í mark án þess að Steinþór Már Auðunsson í marki KA sæi nokkuð til hans.

Valur var svo meira og minna með boltann og í sókn og skilaði það tveimur mörkum í viðbót fyrir hálfleik. Aron Jóhannsson og Andri Rúnar Bjarnason náðu báðir algjörum draumaskotum og var varnarlina KA í miklum vandræðum. Staðan var 3:0 fyrir Val í hálfleik og fátt sem benti til annars en að þetta yrði þægilegur dagur hjá Hlíðarendapiltum.

Öll þrjú mörk Vals í hálfleiknum voru úr sömu uppskriftarbók. Sending kom upp á Andra Rúnar Bjarnason, sem snéri baki í mark KA við vítateigsbogann. Hann saltaði miðverði KA og kom boltanum á samherja. Svo kom bara skot eða sending og mark.

Það má svo segja að seinni hálfleikurinn hafi verið jafn og hvort lið að skapa sín færi. KA-menn voru nær því að skora og hefðu alveg átt skilið að ná inn einu marki. Það var hins vegar valur sem bætti við marki á lokamínútunni. Adam Ægir Pálsson skoraði þá af stuttu færi eftir einfalt spil og góða sendingu inn á markteiginn frá Kristni Frey.

Lokatölur 4:0 fyrir Val og ótrúlega mikill munur á spilamennsku liðanna.

KA 0:4 Valur opna loka
90. mín. Harley Willard (KA) á skot sem er varið Fremur laust og Frederik ver örugglega.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert