Stjarnan upp úr fallsæti með stórsigri

Guðmundur Kristjánsson úr Stjörnunni í baráttunni við Filip Valencic úr …
Guðmundur Kristjánsson úr Stjörnunni í baráttunni við Filip Valencic úr ÍBV. mbl.is/Óttar

Stjarnan vann í dag sinn annan sigur í Bestu deild karla í fótbolta á leiktíðinni er liðið lagði ÍBV á heimavelli, 4:0. Fyrir vikið komst Stjarnan upp úr fallsæti og sendi KR í næstneðsta sæti.

Stjörnumenn byrjuðu af gríðarlegum krafti, í sínum fyrsta leik undir stjórn Jökuls Elísabetarsonar, og Björn Berg Bryde kom þeim yfir á 5. mínútu með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu Guðmundar Baldvins Nökkvasonar.

Björn var einn og óvaldaður í markteig og er ljóst að Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var allt annað en sáttur við varnarleik sinna manna.

Stjörnumenn voru mun líklegri til að bæta við marki næstu mínútur og þeir Adolf Daði Birgisson og Guðmundur Kristjánsson komu báðir boltanum í netið en mörkin voru dæmd af vegna rangstöðu. Eggert Aron Guðmundsson fékk einnig gott færi undir lok hálfleiksins, en Guy Smit í marki ÍBV varði vel frá honum.

Hinum megin gekk ÍBV afar illa að skapa sér færi og hafði Árni Snær Ólafsson ekki mikið að gera í marki Stjörnunnar. Var staðan í leikhléi því 1:0 og Stjörnumenn með sanngjarnt forskot.

Stjörnumenn voru áfram betri í seinni hálfleik og Örvar Logi Örvarsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild, þar hann skoraði með föstu skoti úr teignum, eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Kristjánssyni.

Kjartan Már Kjartansson var næstur til að skora sitt fyrsta mark í efstu deild, aðeins fjórum mínútum síðar, þegar hann skoraði af stuttu færi, eftir glæsilegan undirbúning hjá Ísaki Andra Sigurgeirssyni og staðan orðin 3:0.

Stjörnumenn voru ekki hættir og það dró til tíðinda á 76. mínútu. Þá fékk Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, sitt annað gula spjald og þar með rautt, fyrir að sparka Eggert Aron Guðmundsson niður innan teigs þegar boltinn var hvergi nærri.

Sigurður Hjörtur Þrastarson, ágætur dómari leiksins, dæmdi víti og Hilmar Árni Halldórsson skoraði af öryggi, sitt fyrsta mark á leiktíðinni og fjórða mark Stjörnunnar. Fátt markvert gerðist eftir atvikið og 4:0-sigur Stjörnunnar varð raunin.

Stjarnan 4:0 ÍBV opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti tvær mínútur í uppbótartíma. Leikurinn hefur fjarað út eftir fjórða markið og dómarinn sýnir því skilning að bæði lið eru alveg til í að hafa uppbótartímann stuttan.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert