„Það er hrútalykt af þessu máli“

Kvennalið Tindastóls spilar í Bestu deild kvenna á þessu tímabili.
Kvennalið Tindastóls spilar í Bestu deild kvenna á þessu tímabili. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

Byggðarráð Skagafjarðar hefur skorað á stjórn Knattspyrnusambands Íslands að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun milli karla og kvenna í knattspyrnu. Kröfur KSÍ til sveitarfélaga séu óraunhæfar og eitthvað sem þarf að endurskoða.

„Það er mjög sérstakt á þessum tímum þar sem við tölum um jafnrétti á öllum sviðum - þegar þú ert komin með bestu deild kvenna og karla, afhverju fá þau ekki sama peningaflæði frá Íslenskum toppfótbolta og KSÍ til rekstrar á deildunum.“ segir Einar Einarsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar í samtali við RÚV.

Tindastóll er að spila í Bestu deild kvenna og eru settar sömu kröfur á sveitarfélagið og á sveitarfélög sem á lið í bæði Bestu deild kvenna og karla. Einar gagnrýnir hvernig reglugerðin var sett á laggirnar.

„Þetta eru gríðarlegar kröfur og ef að sveitarfélögin eiga að fylgja þessu eftir til fullnustu þá hlýtur þetta að kosta tugi, jafnvel hundruði milljóna. Þessu er bara skellt á án nokkurs samtals við sveitarfélögin, sem er náttúrulega óeðlilegt.“

Talsmenn Byggðarráðs Skagafjarðar segja að hagsmunasamtök liða í efstu deild karla og kvenna, Íslenskur toppfótbolti, sníði sína hagsmunagæslu, markaðsefni og fjárhagslegan ávinning einkum að körlum og lítið fari fyrir konunum.

„Það vakti athygli mína þegar ég fór inn á heimasíðu íslensks toppfótbolta í gær og sá að stjórnin samanstendur af sjö einstaklingum og þar af eru sex karlar. Það kannski segir allt sem segja þarf um hrútalyktina í þessu máli.“ segir Einar.

Ekki er langt síðan að Íslenskur toppfótbolti komst í fréttirnar þegar fyrirliðar liðanna í Bestu deild kvenna skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu þar sem þær sögðu vinnubrögð ÍTF í besta falli skammarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert