Þetta er mjög súrt

KR-ingar voru skiljanlega svekktir með tapið í dag.
KR-ingar voru skiljanlega svekktir með tapið í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Leikmenn KR voru eðlilega svekktir með tapið gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Kristján Flóki Finnbogason ræddi við mbl.is eftir leik.  

„Þetta er mjög súrt. Við lögðum okkur fram við að berjast og reyna að pota inn marki en þá datt það hinum megin,“ sagði Kristján Flóki.

Þetta var mikill baráttuleikur og eftir fjögur töp í röð, án þess að skora mark, sást á greinilega á upplegginu að það átti að halda hreinu, berjast og eins og Kristján Flóki sagði, pota inn marki.

„Út frá aðstæðum sem eru akkúrat núna, völlurinn erfiður, þá lögðum við upp með þéttan varnarleik, beita skyndisóknum, halda núllinu og skora. Það gekk í 80 mínútur."

KR var loksins komið á sinn heimavöll fyrir framan stúkuna sína á Meistaravöllum, hversu mikilvægt er það?

„Stemmningin er góð og það er mjög gott að vera kominn á völlinn og hann verður bara betri og stuðningurinn er ómetanlegur miðað við að það gengur ekki alltof vel hjá okkur. Það er gott að fá fólk á völlinn til að hvetja okkur áfram. Við erum einstaklega ánægðir með það,“ sagði Kristján Flóki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert