Grindavík vann sinn fyrsta sigur í 1. deild kvenna í fótbolta í dag er liðið lagði sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis í Grindavík, 1:0.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Viktoría Sól Sævarsdóttir sigurmarkið á 69. mínútu.
Grindavík er með einn sigur og eitt jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum á meðan FHL er með einn sigur og eitt tap.
Sigurmarkið gegn FHL á Stakkavíkurvelli⚽️
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) May 14, 2023
Grindavík vann mikilvægan sigur á FHL í Lengjudeild kvenna í gær. Viktoría Sól Sævarsdóttir skoraði sigurmarkið á 69. mínútu í 1-0 sigri.
Grindavík með 4 stig að loknum tveimur umferðum.
Áfram Grindavík!
💙💛 pic.twitter.com/umatWmVWsC