„Það er eðlilegt að það komi ákveðin niðursveifla hjá smærri þjóðum eins og Íslandi og það gerðist líka hjá Noregi og Danmörku,“ sagði Norðmaðurinn Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, í Dagmálum.
Hareide, sem er 69 ára gamall, tók við þjálfun íslenska liðsins í síðasta mánuði af Arnari Þór Viðarssyni en hann hefur einnig stýrt landsliðum Noregs og Danmerkur á ferlinum.
„Blandan í hópnum núna er mjög góð og við erum með reynda leikmenn í blanda við unga leikmenn sem eru allir mjög hæfileikaríkir,“ sagði Hareide.
„Það þarf að vera ákveðið jafnvægi á landsliðum á milli líkamlega sterkra leikmanna og svo leikmanna sem eru mjög sterkir með boltann,“ sagði Hareide meðal annars.