Grótta vann sinn fyrsta leik í 1. deild karla í knattspyrnu á þessu keppnistímabili með sannfærandi heimasigri á Leikni úr Reykjavík, 5:1, á Seltjarnarnesi í kvöld.
Mörk Gróttumanna skoruðu Grímur Ingi Jakobsson, Aron Bjarki Jósepsson, Sigurður Steinar Björnsson og Pétur Theodór Árnason tvívegis. Mark Leiknis skoraði Arnór Ingi Kristinsson.
Grótta er nú í sjötta sæti deildarinnar með sex stig en Leiknismenn eru í því tíunda með þrjú.