Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 manna hóp fyrir lokakeppni Evrópumótsins en Ísland leikur þar í Belgíu dagana 18. til 30. júlí.
Ísland er í riðli með Spáni, Tékklandi og Frakklandi en aðeins átta bestu lið Evrópu leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í þessum aldursflokki.
Allir leikmenn íslenska liðsins leika á Íslandi, sautján þeirra í Bestu deildinni og þrjár í 1. deildinni. Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Aldís Guðlaugsdóttir, FH
Fanney Inga Birkisdóttir, Val
Tinna Brá Magnúsdóttir, Fylki
Aðrir leikmenn:
Írena Héðinsdóttir Gonzalez, Breiðabliki
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, Breiðabliki
Birna Kristín Björnsdóttir, FH (í láni frá Breiðablik)
Elísa Lana Sigurjónsdóttir, FH
Mikaela Nótt Pétursdóttir, Keflavík (í láni frá Breiðabliki)
Emelía Óskarsdóttir, Selfossi (í láni frá Kristianstad)
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir, Selfossi (í láni frá Val)
Eyrún Embla Hjartardóttir, Stjörnunni
Snædís María Jörundsdóttir, Stjörnunni
Sædís Rún Heiðarsdóttir, Stjörnunni
Hildur Björk Búadóttir Val
Bergdís Sveinsdóttir, Víkingi R.
Sigdís Eva Bárðardóttir, Víkingi R.
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Þór/KA
Jakobína Hjörvarsdóttir, Þór/KA
Freyja Karín Þorvarðardóttir, Þrótti R.
Katla Tryggvadóttir, Þrótti R.