hk og víkingur

Erna Guðrún Magnúsdóttir reynir skalla að marki HK-inga í Kórnum …
Erna Guðrún Magnúsdóttir reynir skalla að marki HK-inga í Kórnum í kvöld. Ljósmynd/Óðinn Þórarinsson

Víkingur úr Reykjavík er með fimm stiga forskot á toppi 1. deildar kvenna í knattspyrnu eftir nauman sigur gegn HK í 9. umferð deildarinnar í Kórnum í Kópavogi í kvöld.

Leiknum lauk með 3:1-sigri Víkinga en Erna Guðrún Magnúsdóttir kom Víkingum yfir á 39. mínútu af stuttu færi úr teignum eftir hornspyrnu.

Katrín Rósa Egilsdóttir jafnaði metin fyrir HK á 66. mínútu eftir að hún slapp ein í gegn og hún skoraði af öryggi framhjá Sigurborgu Sveinbjörnsdóttur í marki Víkinga.

Birta Birgisdóttir kom Víkingum svo yfir á nýjan leik á 81. mínútu með skoti utan teigs sem hafði viðkomu í varnarmönnum HK.

Bergdís Sveinsdóttir innsiglaði svo sigur Víkinga með marki úr hornspyrnu á 87. mínútu en hornspyrna Bergísar sigldi í gegnum allan pakkann í vítateig HK og þaðan í netið.

Víkingar eru með 22 stig í efsta sætinu en HK er í öðru sætinu með 17 stig. Fylkir fylgir þar á eftir með 16 stig en Árbæingar eiga leik til góða á toppliðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka