Breiðablik er komið í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar karla í knattspyrnu eftir afar sannfærandi sigur á Buducnost frá Svartjallalandi, 5:0, í úrslitaleik forkeppninnar á Kópavogsvelli í kvöld.
Í fyrstu umferðinni mætir Breiðablik írska liðinu Shamrock Rovers.
Til að komast í úrslitaleikinn vann Breiðablik Tre Penne frá San Marínó 7:1 á Kópavogsvelli á þriðjudaginn var. Samdægurs sló Buducnost út Atlétic d'Escaldes, meistaralið Andorra, með 3:0-sigri.
Fyrir leik þekktu Blikar vel til Buducnost eftir að hafa unnið einvígi liðanna í Sambandsdeild Evrópu á síðasta ári, 3:2 samanlagt, eftir mikinn hasar í lok fyrri leiks liðanna á Kópavogsvelli. Leikurinn í kvöld var aftur á móti mun rólegri.
Fjögur mörk í fyrri hálfleik
Svartfellingarnir sáu aldrei til sólar en strax á fimmtu mínútu kom Viktor Karl Einarsson Blikum yfir. Þá var misskilningur í vörn Buducnost sem endaði með því að Kristinn Steindórsson fékk boltann, þræddi síðar Viktor Karl í gegn og hann lagði boltann í hornið fjær af mikilli yfirvegun.
Blikar héldu áfram að sækja næstu mínútur og á 22. mínútu tvöfaldaði Stefán Ingi Sigurðarson forystu Kópavogsliðið. Þá átti Gísli Eyjólfsson misheppnaða sendingu á Stefán, en varnarmaður Buducnost misreiknaði sendinguna enn meira og hún rataði í gegnum klof hans á Stefán, sem líkt og Viktor Karl lagði boltann í fjær, 2:0.
Sex mínútum síðar var komið að Gísla sjálfum en þá fékk hann boltann utan vítateigs og smellti honum í stöng og inn, glæsilegt mark en enn og aftur var varnarleikur Buducnost í molum.
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði svo fjórða mark Blika á 33. mínútu þegar hann fékk sendingu frá Stefáni Inga, tók snertingu framhjá Zvonko Ceklic í vörn Buducnost og smellti síðan boltanum í vinstra hornið niðri.
Blikar fóru því með afar sannfærandi 4:0-forystu til búningsklefa.
Varamaðurinn Jason Daði Svanþórsson bætti svo við fimmta marki Kópavogsliðsins á 74. mínútu, en þá var enn og aftur bras í varnarleik Buducnost.
Að lokum unnu Blikar sannfærandi 5:0-sigur og fara til Írlands og mæta írsku meisturunum Shamrock Rovers í fyrstu umferðinni. Ef Breiðablik vinnur Shamrock mætir liðið dönsku meisturunum FC Köbenhavn í annarri umferð.