Ísak Andri kominn til Norrköping

Ísak Andri Sigurgeirsson.
Ísak Andri Sigurgeirsson.

Ísak Andri Sigurgeirsson, knattspyrnumaður úr Stjörnunni, er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping.

Félagaskipti hans hafa verið staðfest af KSÍ. Hann er fjórði Íslendingurinn í röðum Norrköping en með liðinu leika Arnór Ingvi Traustason, Andri Lucas Guðjohnsen og Ari Freyr Skúlason.

Ísak Andri, sem er 19 ára kantmaður, hefur farið á kostum með Garðabæjarliðinu á þessu keppnistímabili, sem og því síðasta, og verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert