Fjórði Daninn til Vestra

Tarik Ibrahimagic með Davíð Smára Lamaude, þjálfara Vestra.
Tarik Ibrahimagic með Davíð Smára Lamaude, þjálfara Vestra. Ljósmynd/Vestri

Knattspyrnudeild Vestra hefur samið við danska sóknarmanninn Tarik Ibrahimagic. Hann lék síðast með Næstved í dönsku 1. deildinni.

Ibrahimagic, sem er 22 ára, hefur spilað sjö leiki fyrir OB í dönsku úrvalsdeildinni. Þá var hann í yngri landsliðum Danmerkur á sínum tíma.

Fyrir eru þrír Danir hjá Vestra; Gustav Kjeldsen, Morten Hansen og Mikkel Jakobsen. Vestri er í sjötta sæti 1. deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert