Dagný Brynjarsdóttir er barnshafandi

Dagný Brynjarsdóttir er ólétt.
Dagný Brynjarsdóttir er ólétt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður West Ham, er barnahafandi í annað sinn. 

Frá þessu greindu hún og unnusti hennar Ómar Páll Sigurbjartsson á Instagram-síðum þeirra. Eiga þau einn son fyrir hann Brynjar Atla. 

Barnið á að koma í heiminn á næsta ári en Dagný og Ómar greindu ekki frá frekari dagsetningu. 

Mun Dagný því ekki spila með liði sínu West Ham, þar sem hún er fyrirliði, né íslenska liðinu í vetur. 

Íslenska kvennalandsliðið leikur sína fyrstu leiki í Þjóðadeildinni gegn Wales og Þýskalandi í lok september. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert