Átta marka drama og titillinn blasir við

Nikolaj Hansen fagnar fyrsta marki leiksins.
Nikolaj Hansen fagnar fyrsta marki leiksins. mbl.is/Óttar

Vík­ing­ar náðu fjór­tán stiga for­skoti í Bestu deild karla í fót­bolta á Vík­ings­vell­in­um í kvöld þegar þeir sigruðu Breiðablik, 5:3, og Íslands­meist­ara­tit­ill­inn blas­ir við þeim.

Vík­ing­ar eru komn­ir með 56 stig á toppn­um en Vals­menn eru með 42 stig í öðru sæti, þannig að Vík­ingsliðið á nú mögu­leika á að tryggja sér meist­ara­titil­inn í 22. um­ferðinni, þegar enn verður eft­ir að leika fimm um­ferðir í efri hluta deild­ar­inn­ar. Blikar eru áfram með 38 stig í þriðja sæt­inu.

Dramað var mikið í Vík­inni í kvöld því ekk­ert bólaði á leik­mönn­um Breiðabliks og leik­skýrsla, sem jafn­an á að skila klukku­stund fyr­ir leik, skilaði sér ekki. 

Blikar mættu síðan beint á völl­inn, hvíldu lang­flesta lyk­il­menn sína, enda var spilað á milli mik­il­vægra Evr­ópu­leikja, en voru ekk­ert að tvínóna við það og sóttu af mikl­um krafti til að byrja með. Vík­ing­ar stóðu það af sér og tóku síðan völd­in. Kvöld­inu lauk síðan með 5:3-sigri Vík­inga.

Leik­ur­inn hófst með lát­um og þar voru Blikar mun djarf­ari og sóttu hratt. Eft­ir tvær horn­spyrn­ur átti Ágúst Orri Þor­steins­son gott skot á mark Vík­inga á 3. mín­útu en rétt fram hjá.

Danij­el Dej­an Djuric átti síðan gott skot hinum meg­in á 6. mín­útu þegar hann komst í gegn­um vörn Blika en varn­ar­menn Blika eltu hann upp og Brynj­ar Atli Braga­son í mark­inu varði í horn.

Blikar héldu áfram að hlaupa í sókn­ir en góðu fær­in voru hinum meg­in og á 8. mín­útu skaut Erl­ing­ur Agn­ars­son rétt fram hjá stöng Blika, en fé­lagi hans Ni­kolaj Han­sen var hárs­breidd frá því að ná að pota bolt­an­um í markið.

Fjörið var enn gangi og Kristó­fer Ingi Krist­ins­son átti gott skot á mark Vík­inga á 10. mín­útu en það fór rétt fram hjá.

Eitt­hvað var eft­ir að gefa og á 23. mín­útu kom fyrsta markið þegar Birn­ir Snær Inga­son spretti upp vinstri kant­inn, lék sér með bolt­ann og beið eft­ir að Ni­kolaj Han­sen kæmi sér fyr­ir, sem Dan­inn gerði,  fékk síðan bolt­ann beint á koll­inn og skallaði í hægra hornið.

Vík­ing­ar voru komn­ir á bragðið og eft­ir góða sókn á 26. mín­útu sendi Danij­el glæsi­lega yfir á hægri kant þar sem Aron Elí Þránd­ar­son hlóð í skot en hitti ekki markið.  Gott færi fór í súg­inn.

Mín­útu síðar komst Gunn­ar Vatn­ham­ar í færi en skalli hans var laus og Brynj­ar Atli varði í horn.

Blikar voru ekki eins beitt­ir enda bún­ir að hlaupa af sér horn­in, Vík­ing­ar biðu eft­ir því og tóku svo við stjórn leiks­ins þó þeir mættu alls ekki slaka á, hvort sem var í vörn eða á miðju.

Á 36. mín­útu kom næsta mark, Pablo Punyed tók horn frá hægri, bolt­inn kom niður rétt við markteigs­línu þar sem Aron Elís Þránd­ar­son stökk upp og skallaði niður í vinstra hornið.  Þetta var ein­falt og af­greitt. Staðan var orðin 2:0.

Blikar voru ekki hætt­ir þó Vík­ing­ar væru með und­ir­tök­in og á 42. mín­útu sendi Andri Rafn Yeom­an lúmska send­ingu í gegn­um vörn Vík­inga þar sem Ágúst Eðvald Hlyns­son var mætt­ur til að skjóta bolt­an­um und­ir Ingvar Jóns­son í mark­inu. Staðan var 2:1 og aft­ur var spenna í leikn­um.

Aðeins voru liðnar þrjár mín­út­ur af síðari hálfleik þegar þriðja mark Vík­inga kom.  Þá var Erl­ing­ur Agn­ars­son með bolt­ann á hægri væng, gaf síðan fyr­ir að vinstri stöng­inni þar sem Danij­el skallaði af yf­ir­veg­un í hægra hornið og staðan var orðin 3:1.

Þó góðu fær­in hafi vantað var næg­ur kraft­ur í leikn­um, marg­ar góðar sókn­ir lagðar upp en illa gekk að reka enda­hnút­inn á þær og þær sem þó töld­ust sem skot á mark voru ekki hættu­leg­ar.

Fjórða mark Vík­inga á 65. mín­útu kom síðan upp úr næstu engu þegar vörn Blika var að vand­ræðast í teign­um sín­um þegar Helgi Guðjóns­son náði af þeim bolt­an­um og renndi til hægri þar sem Matth­ías Vil­hjálms­son var mætt­ur til að skjóta í því sem næst autt markið.

Fimmta markið skoraði Helgi sjálf­ur á 69. mín­útu þegar vörn Breiðabliks sofnaði á verðinum, Helgi skaust í gegn og lyfti bolt­an­um yfir Brynj­ar Atla í mark­inu til að koma Vík­ing­um í 5:1.

Til marks um fjörið þá minnkaði Ásgeir Helgi Orra­son mun­inn í 5:2 á 71. mín­útu þegar vörn Vík­inga tókst ekki að hreinsa frá og hann þrumaði bolt­an­um upp í hægra hornið úr þröngu færi.

Enn var skorað og nú á 75. mín­útu þegar Kristó­fer Ingi Krist­ins­son var með bolt­ann fyr­ir utan teig og lét vaða, skotið kom inn við vinstri stöng­ina og var óverj­andi.  Staðan var orðin 5:3 og allt í gangi.

Vík­ing­ar juku enn for­skot sitt á toppi deild­ar­inn­ar, komn­ir með 56 stig og 14 stiga for­skot á næsta lið, Val, og einn leik­ur eft­ir af 22ja leikja um­ferðinni en Blikar eru í þriðja sæti með 38 stig. 

Í síðustu um­ferðinni fyr­ir efri og neðri hluta keppn­inn­ar mæta Vík­ing­ar Fram í Úlfarsár­daln­um en Breiðablik fær FH í heim­sókn í Kópa­vog­inn.

Vík­ing­ur R. 5:3 Breiðablik opna loka
skorar úr víti Gary Martin (10. mín.)
skorar Gary Martin (12. mín.)
Mörk
fær gult spjald Igor Taskovic (40. mín.)
fær gult spjald Vladimir Tufegdzic (70. mín.)
Spjöld
mín.
90 Leik lokið
Sanngjarn sigur heimamanna í Víkinni í kvöld.
90 Víkingur Ó. fær hornspyrnu
87 Óttar Ásbjörnsson (Víkingur Ó.) kemur inn á
87 Emir Dokara (Víkingur Ó.) fer af velli
85 Gary Martin (Víkingur R.) á skot sem er varið
Sólaði varnarmenn áður en hann skaut frá vítapunkti en Martinez varði. Martin vill væntanlega ná þrennunni í kvöld.
83 Gary Martin (Víkingur R.) á skot framhjá
Fékk boltann við vítateigslínu, stillti sér upp en þrumaði hátt yfir markið.
79 Gary Martin (Víkingur R.) á skot sem er varið
Ágætt skot með vinstri fæti utan teigs en Martinez er vandanum vaxinn í markinu.
77 Pape Mamadou Faye (Víkingur Ó.) kemur inn á
77 William Domingues (Víkingur Ó.) fer af velli
77 Bjarni Páll Runólfsson (Víkingur R.) kemur inn á
77 Dofri Snorrason (Víkingur R.) fer af velli
75 Ívar Örn Jónsson (Víkingur R.) á skot framhjá
Þrumuskot utarlega úr teignum í kjölfarið á hornspyrnu. Boltinn fór rétt framhjá markinu.
75 Víkingur R. fær hornspyrnu
70 Vladimir Tufegdzic (Víkingur R.) fær gult spjald
Brýtur á Tokic og fær gult spjald.
70 Víkingur R. fær hornspyrnu
69 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur R.) kemur inn á
69 Viktor Jónsson (Víkingur R.) fer af velli
69 Gary Martin (Víkingur R.) á skot sem er varið
Fékk boltann á vinstri vængnum, æddi í átt að marki og skaut en Martinez varði í horn.
67
Björn kemur á miðja miðjuna, við hliðina á Agli Jónssyni. William Dominguez færir sig á vinstri kantinn og Þórhallur á þann hægri.
66 Björn Pálsson (Víkingur Ó.) kemur inn á
66 Alfreð Már Hjaltalín (Víkingur Ó.) fer af velli
65
Við þessa breytingu hjá heimamönnum fer Dofri í hægri bakvörðinn, Halldór Smári í miðja vörnina og Taskovic á miðjuna.
64 Hrvoje Tokic (Víkingur Ó.) á skot framhjá
Fékk boltann utan teigs, tók hann á lofti og þrumaði rétt framhjá markinu.
63 Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.) kemur inn á
63 Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) fer af velli
60
Pontus Nordenberg, vinstri bakvörður gestanna, virðist hafa fengið högg á andlitið og sjúkraþjálfari athugaði stöðuna á honum. Svíinn harkar af sér og heldur leik áfram.
56 Ívar Örn Jónsson (Víkingur R.) á skot framhjá
Vann boltann af Alfreð rétt utan vítateigs og skaut að marki en boltinn fór rétt framhjá.
55 Víkingur R. fær hornspyrnu
51 Þórhallur Kári Knútsson (Víkingur Ó.) á skot sem er varið
Fylgdi eftir skotinu frá Þorsteini en Róbert varði aftur.
51 Þorsteinn Már Ragnarsson (Víkingur Ó.) á skot sem er varið
Komst einn gegn markverði eftir góðan samleik hans og Tokic en Róbert varði vel.
48 Víkingur R. fær hornspyrnu
47 Víkingur R. fær hornspyrnu
46
Úff! Gestirnir vilja fá vítaspyrnu eftir nokkrar sekúndur í seinni hálfleik. Taskovic virtist tækla Þórhall Kára inni í vítateig en Ívar dæmdi ekkert.
46 Seinni hálfleikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann í síðari hálfleik og sækja nú í átt að Víkingsheimilinu.
45 Hálfleikur
Heimamenn eru með tveggja marka forskot að loknum fyrri hálfleik. Verðskulduð staða.
43 Vladimir Tufegdzic (Víkingur R.) á skot framhjá
Fékk sendingu inn fyrir vörn Ólsara, virtist vera búinn að missa boltann en náði honum aftur og skaut framhjá úr ágætu færi.
40 Igor Taskovic (Víkingur R.) fær gult spjald
Brýtur á Dominguez og fær gult spjald. Ólsarar voru með boltann í góðri sókn og voru pirraðir út í Ívar dómara fyrir að stöðva sóknina.
36
Róbert lá á vellinum eftir að hann kýldi boltann frá en eftir smá aðstoð sjúkraþjálfara er hann staðinn á fætur.
35 William Domingues (Víkingur Ó.) á skot framhjá
Eftir fyrirgjöf frá hægri kýldi Róbert boltann frá. Dominguez fékk boltann utan vítateigs og reyndi skot en boltinn fór yfir markið.
28 Víkingur Ó. fær hornspyrnu
28 Hrvoje Tokic (Víkingur Ó.) á skot sem er varið
Frábær tilraun! Eftir langt innkast barst boltinn á Tokic og hann reyndi hjólhestaspyrnu en Róbert í marki heimamanna varði í horn.
27
Leikurinn hefur róast talsvert eftir fjörkippinn sem heimamenn tóku hérna áðan. Gestirnir reyna að sækja en komast lítt áleiðis og virka hálf pirraðir.
19 Víkingur R. fær hornspyrnu
19 Gary Martin (Víkingur R.) á skot framhjá
Gary komst í gott færi vinstra megin í teignum en hitti boltann illa. Varnarmaður gestanna komst í boltann og heimamenn fá því hornspyrnu.
17
Frábær byrjun heimamanna og gestirnir virðast hálf slegnir eftir mörkin tvö og skal engan undra.
12 MARK! Gary Martin (Víkingur R.) skorar
2:0 - Það er kviknað á Gary Martin! Viktor Jónsson reyndi að flikka boltanum inn á Arnþór Inga en varnarmaður gestanna komst í boltann. Það vildi þó ekki betur en svo til fyrir gestina að boltinn datt fyrir Martin, sem skoraði af öryggi með skoti úr miðjum vítateignum.
10 MARK! Gary Martin (Víkingur R.) skorar úr víti
1:0 - Gríðarlega öruggt víti hjá Martin. Smellti boltanum upp í samskeytin hægra megin en Martinez skutlaði sér í vitlaust horn.
10 Víkingur R. fær víti
Eftir klafs í teignum í kjölfarið á hornspyrnu var brotið sparkað í Arnþór Inga og Ívar Orri, dómari leiksins, dæmir vítaspyrnu.
9 Víkingur R. fær hornspyrnu
6 Dofri Snorrason (Víkingur R.) á skot framhjá
Viktor skallaði boltann á Dofra og lúmskt skot hans með vinstri fæti frá vítateigslínu fór rétt farmhjá marki gestanna. Leikurinn fer fjörlega af stað.
4 William Domingues (Víkingur Ó.) á skot sem er varið
Eftir langt innkast frá hægri datt boltinn fyrir Dominguez en skot hans fór beint á Róbert í marki heimamanna.
2 William Domingues (Víkingur Ó.) á skot framhjá
Skot úr aukaspyrnu af um það bil 25 metra færi.
1 Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik.
0
Fjórar breytingar eru á byrjunarliði heimamanna frá 2:1-tapinu gegn Fjölni í síðustu umferð. Halldór Smári, Viktor Bjarki Martin Svensson og Óttar Magnús víkja. Í stað þeirra koma Alex Freyr, Viktor Jónss., Arnþór Ingi og Davíð Örn í liðið.
0
Gísli Eyjólfsson var í byrjunarliði Ólsara í síðasta leik en hefur leikið síðasta leik sinn með þeim í sumar. Hann var í láni frá Breiðablik en hefur nú verið kallaður heim til Kópavogs. Pape Mamadoue Faye fær sér sæti á bekknum frá síðasta leik. Í stað þeirra kom William Dominguez og Þórhallur Kári Knútsson í byrjunarliðið.
0
Leikmenn liðanna voru að skokka út á völl og eru byrjaðir að hita upp á blautu grasinu. Það hefur rignt talsvert í höfuðborginni í dag og því megum við búast við skemmtilegum leik.
0
Líðin léku bæði síðast í deildinni fyrir tæpum þremur vikum, 5. júní. Ólsarar sigruðu þá Fylkir, 1:0, en Reykjavíkingar töpuðu 2:1 fyrir Fjölni.
0
Gestirnir frá Ólafsvík eru í 5. sæti deildarinnar með 14 stig en heimamenn eru með átta stig í 9. sæti.
0
Blessuð og sæl. Velkomin með mbl.is í beina textalýsingu frá viðureign Víkings Reykjavíkur og Víkings Ólafsvíkur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli.
Sjá meira
Sjá allt

Víkingur R.: (4-4-2) Mark: Róbert Örn Óskarsson. Vörn: Davíð Örn Atlason (Halldór Smári Sigurðsson 63), Igor Taskovic, Alan Lowing, Ívar Örn Jónsson. Miðja: Vladimir Tufegdzic, Dofri Snorrason (Bjarni Páll Runólfsson 77), Arnþór Ingi Kristinsson, Alex Freyr Hilmarsson. Sókn: Gary Martin, Viktor Jónsson (Óttar Magnús Karlsson 69).
Varamenn: Kristófer Karl Jensson (M), Halldór Smári Sigurðsson, Bjarni Páll Runólfsson, Martin Svensson, Erlingur Agnarsson, Stefán Þór Pálsson, Óttar Magnús Karlsson.

Víkingur Ó.: (4-3-3) Mark: Cristian Martinez. Vörn: Emir Dokara (Óttar Ásbjörnsson 87), Aleix Egea, Tomasz Luba, Pontus Nordenberg. Miðja: Egill Jónsson, William Domingues (Pape Mamadou Faye 77), Þorsteinn Már Ragnarsson. Sókn: Alfreð Már Hjaltalín (Björn Pálsson 66), Hrvoje Tokic, Þórhallur Kári Knútsson.
Varamenn: Einar Hjörleifsson (M), Björn Pálsson, Óttar Ásbjörnsson, Kristinn M. Pétursson, Pape Mamadou Faye, Leó Örn Þrastarson, Vignir Snær Stefánsson.

Skot: Víkingur R. 11 (5) - Víkingur Ó. 7 (4)
Horn: Víkingur Ó. 2 - Víkingur R. 7.

Lýsandi: Jóhann Ólafsson
Völlur: Víkingsvöllur
Áhorfendafjöldi: 524

Leikur hefst
24. júní 2016 19:15

Aðstæður:
10 gráðu hiti og skúrir. Völlurinn grænn og fallegur.

Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Óli Njáll Ingólfsson

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert