Þróttur úr Reykjavík vann góðan heimasigur á Breiðabliki í lokaumferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Skoruðu heimakonur fjögur mörk á móti tveimur, en Elín Metta Jensen skoraði þriðja mark Þróttara, og sitt fyrsta fyrir liðið.
Leikmenn Blika mættu mjög einbeittir til leiks, og ekki leið á löngu þar til boltinn lá í neti Þróttara, en Hafrún Rakel náði þá frákasti á 7. mínútu og skoraði, en reyndist vera rangstæð. Þróttarar vöknuðu hins vegar nokkuð til lífsins eftir rangstöðumarkið og náðu í nokkur skipti að velgja gestunum vel undir uggum.
Blikar voru þó sterkari aðilinn í leiknum og uppskáru sem þær sáðu á 25. mínútu. Fyrirliðinn Agla María Albertsdóttir átti þá frábæra sendingu inn fyrir vörn Þróttara, þar sem Birta Georgsdóttir tók vel á móti og afgreiddi boltann mjög vel framhjá Írisi Dögg í marki Þróttar.
Skömmu eftir markið skiptu Þróttarar um leikkerfi og fóru í 4-4-2 með svokölluðum demantsmiðju, þar sem Katie Cousins var allt í öllu í spili heimamanna. Á sama tíma virtist sem að Blikar sofnuðu á verðinum, og kom því lítið á óvart þegar Þróttarar jöfnuðu leikinn á 41. mínútu.
Elín Metta Jensen, sem hóf hér sinn fyrsta heimaleik með Þrótti, átti þá fasta sendingu eða skot inn í teiginn sem Telma, markvörður Breiðabliks, varði út í markteig. Sæunn Björnsdóttir var þar allra fyrst í boltann og potaði honum inn.
Sæunn var svo aftur að verki tveimur mínútum síðar. Tanya Boychuk átti þá sendingu sem Toni Pressley, varnarmaður Blika komst fyrir, en Toni náði ekki að hreinsa nægilega vel frá. Boltinn barst þá til Sæunnar sem skaut bylmingsföstu skoti að marki. Boltinn fór í Toni og breytti verulega um stefnu af henni, en líklega var boltinn á leiðinni að marki.
Þróttarar fóru því í hálfleikinn með verðskuldaða forystu, þrátt fyrir að Blikar hefðu verið sterkari aðilinn framan af. Gestirnir mættu hins vegar staðráðnir inn í seinni hálfleikinn og ætluðu sér að jafna, á meðan Þróttarar sættu sig við að beita stórhættulegum skyndisóknum til að svara góðum leik Blika.
Birta Georgsdóttir skoraði sitt annað mark og jafnaði leikinn á 60. mínútu. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir átti þá langa sendingu fram á Taylor, sem sendi hann nánast í fyrstu fyrir markið þar sem Birta þakkaði pent fyrir sig. Skömmu síðar átti Andrea Rut Bjarnadóttir skot í stöngina, og flest benti til þess að gestirnir myndu fljótt ná forystunni á nýjan leik.
Þær vonir fóru fyrir lítið á 64. mínútu, en þá fékk Elín Metta Jensen knöttinn á góðum stað í vítateignum og skoraði með góðu skoti framhjá Telmu í markinu.
Blikar reyndu eftir þetta allt sem þær gátu til þess að jafna metin, en Þróttarar náðu að verjast vel. Fjórða mark þeirra kom svo á 88. mínútu en þá rak Katla Tryggvadóttir smiðshöggið á góða skyndisókn og tryggði heimamönnum góð þrjú stig.
Þróttur er í fjórða sæti með 28 stig og Breiðablik er í öðru sæti með 34 stig. Nú taka við síðustu fimm umferðir mótsins, og ef leikurinn í dag gefur einhver fyrirheit um framhaldið, ætti enginn að verða svikinn af þeim.