Akureyringurinn kallaður inn í hópinn

Brynjar Ingi Bjarnason á 14 A-landsleiki að baki.
Brynjar Ingi Bjarnason á 14 A-landsleiki að baki. Ljósmynd/Robert Spasovski

Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur kallað Brynjar Inga Bjarnason inn í hópinn fyrir leikinn gegn Bosníu í undankeppni EM á mánudag.

Hörður Björgvin Magnússon fékk rautt spjald í leiknum gegn Lúxemborg í kvöld og verður því í banni gegn Bosníu. Vegna þessa er skortur á miðvörðum í íslenska hópnum.

Brynjar Ingi leikur með HamKam í Noregi og hefur skorað tvö mörk í 14 A-landsleikjum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert