Heiðar Helgu og Ingi aðstoða Bjarna Jó

Heiðar Helguson og Ingi Rafn Ingibergsson.
Heiðar Helguson og Ingi Rafn Ingibergsson. Ljósmynd/Selfoss

Heiðar Helguson og Ingi Rafn Ingibergsson hafa verið ráðnir sem aðstoðarþjálfarar meistaraflokks karla hjá Selfossi. Þeir munu því starfa við hlið Bjarna Jóhannssonar, nýráðnum þjálfara liðsins.

Heiðar Helguson þarf vart að kynna en hann er fyrrum landsliðsmaður og á ferlinum spilaði hann m.a. með Fulham, QPR, Cardiff og Lilleström. Hann var síðast aðstoðarþjálfari Kórdrengja í næst efstu deild á Íslandi 2021-22.

Ingi Rafn heldur áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins en undanfarin ár hefur hann  þjálfað yngri flokka á Selfossi.

„Knattspyrnudeild Selfoss bindur miklar vonir við að hæfni og áratugareynsla þessa fyrrum leikmanna muni nýtast knattspyrnudeild Selfoss vel á næstu árum í þeirri uppbyggingu sem fram undan er,“ sagði í til­kynn­ing­u frá knatt­spyrnu­deild Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert