Skiptir öllu máli fyrir Akureyringa að halda henni

„Spurningin er bara hvort hún eigi ekki að gera það á Akureyri,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþróttadeildar mbl.is og Morgunblaðsins, í uppgjörsþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Sandra María á förum?

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, hefur verið orðuð við brottför frá félaginu að undanförnu en hún er algjör lykilmaður í liði Akureyringa.

„Það skiptir öllu máli fyrir þá, upp á framhaldið að gera, að halda Söndru Maríu,“ sagði Víðir.

„Ætli Þór/KA sér að gera eitthvað þá þurfa þeir að halda henni og ég vona að þeir geri það fyrir þeirra hönd,“ sagði Víðir meðal annars.

Uppgjörsþátt Dagmála fyrir Bestu deild kvenna má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Sandra María Jessen er lykilmaður hjá Þór/KA og fyrirliði liðsins.
Sandra María Jessen er lykilmaður hjá Þór/KA og fyrirliði liðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert