Helgi Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fram í knattspyrnu í Bestu deild. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Helgi þjálfaði síðast Grindavík í 1. deild en lét af störfum um mitt tímabil. Hann hefur einnig stýrt ÍBV og stýrði Fylki frá 2017 til 2019 og kom liðinu upp í efstu deild.
Helgi spilaði 61 deildarleik með Fram á sínum ferli og skoraði í þeim 37 mörk. Fyrst lék hann með liðinu á árunum 1993-1997, aftur árið 2006, og árið 2013 var hann svo spilandi aðstoðarþjálfari liðsins.
Hann á að baki 62 A-landsleiki fyrir Ísland þar sem hann skoraði tíu mörk. Hann mun aðstoða Rúnar Kristinsson, gamla liðsfélaga sinn í landsliðinu, sem var nýlega ráðinn sem þjálfari Fram.