Notum ekki gervigrasið sem afsökun

Robbie Keane, knattspyrnustjóri Maccabi Tel Aviv.
Robbie Keane, knattspyrnustjóri Maccabi Tel Aviv. Ljósmynd/Skjáskot

Írinn Robbie Keane, knattspyrnustjóri ísraelska liðsins Maccabi Tel Aviv, segir liðið ekki láta það á sig fá að spila á gervigrasvelli gegn Breiðabliki í Sambandsdeild Evrópu á morgun.

Upphaflega átti leikurinn að fara fram á Laugardalsvelli en vegna vallarskilyrða ákvað UEFA að færa hann á Kópavogsvöll, þar sem gervigras er.

„Við höfum lent í ýmsum erfiðum aðstæðum og þetta eru bara aðrar slíkar. Við felum okkur ekki á bak við þær, svona er þetta bara. Bæði lið þurfa að spila á þessum velli.

Þeir eru auðvitað með forskot því þeir spila hér og eru vanir vellinum. Þess vegna æfum við á honum í dag og skoðum hann.

Æskilegast væri að spila á grasi. Ég held að allir sem spila fótbolta vilji það en svona er þetta. Við höldum áfram eins og við gerum alltaf,“ sagði Keane á fréttamannafundi á Kópavogsvelli í dag.

Ekki hugsað um það í eina sekúndu

Forsvarsmenn Maccabi eru samkvæmt heimildum mbl.is ósáttir við að leikurinn hafi verið færður á Kópavogsvöll og sömuleiðis við að honum hafi verið flýtt. Leikurinn hefst klukkan 13 á morgun en átti upphaflega að fara fram klukkan 20 á Laugardalsvelli.

Spurður hvort Maccabi hafi lagt fram formlega kvörtun til UEFA sagði Keane:

„Satt að segja hef ég ekki hugsað um það í eina sekúndu, það er ekki í mínum verkahring. Starf mitt er fólgið í því að undirbúa liðið sem allra best fyrir þennan leik og reyna að ná í jákvæð úrslit á morgun.“

Ekki eins að spila á gervigrasi

UEFA tilkynnti um ákvörðun sína að breyta leikstað og -tíma tveimur sólarhringum fyrir leikinn. Írski stjórinn sagði það ekki breyta neinu í undirbúningi liðsins.

„Nei, við höldum okkar striki. Við undirbúum okkur eins. Við einbeitum okkur að sömu smáatriðunum, sömu hlutunum sem við höfum verið að vinna í. Það að þetta sé gervigrasvöllur breytir því ekki.

Ég er viss um að margir leikmanna minna hafi spilað á gervigrasi í gegnum tíðina. Ég hef gert það og það er ekki eins en við ætlum svo sannarlega ekki að nota það sem afsökun,“ sagði Keane.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert