Knattspyrnukonan Ásdís Karen Halldórsdóttir hefur samið við norska félagið Lillestrøm og mun ganga í raðir þess frá Val samkvæmt heimildum mbl.is. Mun félagið tilkynna félagaskiptin á morgun.
Ásdís, sem fagnar 24 ára afmælinu sínu á morgun, hefur skorað 30 mörk í 139 leikjum í efstu deild með Val og KR.
Hún skoraði sex mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að Valur varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð, en hún hefur verið í stóru hlutverki í liðinu öll árin.
Ásdís hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið á undanförnum árum og er með einn skráðan A-landsleik á KSÍ, en hann var með B-landsliðinu í vináttuleik gegn Eistlandi á síðasta ári.
Lillestrøm hafnaði í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, fjórum stigum á eftir Noregsmeisturum Vålerenga.
Ásdís er þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur Val á undanförnum vikum og fer í erlent félag. Bryndís Arna Níelsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir sömdu við Växjö á dögunum.