Davíð Snær Jóhannsson knattspyrnumaður úr FH hefur samið við Aalesund í Noregi. Hann gengur til liðs við félagið eftir að hafa leikið með FH-ingum undanfarin tvö tímabil.
Davíð Snær er 21 árs gamall og er uppalinn í Keflavík en þaðan gekk hann til liðs við Lecce á Ítalíu í ársbyrjun 2022. Eftir stutta dvöl þar kom hann í raðir Hafnarfjarðarliðsins um vorið. Í tilkynningu frá FH staðfestir Davíð Þór, yfirmaður knattspyrnustjóri knattspyrnumála brottför leikmannsins.
Davíð skoraði sjö mörk í 23 leikjum fyrir FH í Bestu deildinni í ár og hefur alls skorað átta mörk í 74 leikjum í deildinni. Hann er leikmaður 21-árs landsliðs Íslands og skoraði m.a. sigurmark liðsins gegn Litháen á útivelli í undankeppni EM í haust.
Aalesund leikur í norsku B-deildinni á næsta tímabili eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í ár.
„Við munum að sjálfsögðu sakna Davíðs Snæs, hann var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður okkar á síðasta tímabili. En þetta sýnir á sama tíma að við gerum að gera vel, við keyptum Davíð fyrir einu og hálfu ári síðan og erum búnir að hjálpa honum að taka næsta skref á sínum ferli. Við getum boðið ungum leikmönnum upp á mjög góðar aðstæður til að þróa leik sinn, bæði er aðstaðan góð hjá okkur og þjálfarateymið okkar mjög fært og það á stóran þátt í því að Davíð fær þetta tækifæri núna. Við óskum Davíð Snæ góðs gengis í Noregi og þökkum honum fyrir hans störf fyrir Fimleikafélagið,“ segir í tilkynningu félagsins á samfélagsmiðlum í dag.