Átján stúlkur valdar fyrir vináttulandsleiki

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir úr Val er leikjahæst í hópnum sem …
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir úr Val er leikjahæst í hópnum sem fer til Portúgal með 19 leiki með U19 ára landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Margrét Magnúsdóttir þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í fótbolta hefur valið átján leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Portúgal og Finnlandi sem fara fram í Portúgal síðar í þessum mánuði.

Með þessum leikjum býr liðið sig undir seinni hlutann af undankeppni EM sem fram fer í apríl en þá leikur íslenska liðið í riðli með Írlandi, Króatíu og Austurríki.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Heiðdís Emma Sigurðardóttir, Stjörnunni
Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir, Víkingi R.

Aðrir leikmenn:
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Breiðabliki
Harpa Helgadóttir, Breiðabliki
Margrét Lea Gísladóttir, Breiðabliki
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir, Breiðabliki
Elísa Lana Sigurjónsdóttir, FH
Margrét Brynja Kristinsdóttir, FH
Telma Steindórsdóttir, Fram
Eyrún Embla Hjartardóttir, Stjörnunni
Ísabella Sara Tryggvadóttir, Val
Kolbrá Una Kristinsdóttir, Val
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir, Val
Bergdís Sveinsdóttir, Víkingi R.
Sigdís Eva Bárðardóttir, Víkingur R.
Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Þór/KA
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir, Þór/KA
Steingerður Snorradóttir, Þór/KA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert