Viktor Jónsson og Marko Vardic fóru mikinn fyrir ÍA þegar liðið tók á móti Aftureldingu í 4. riðli deildabikars karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í kvöld.
Leiknum lauk með öruggum sigri ÍA, 5:2, en þeir Viktor og Vardic skoruðu tvívegis hvor fyrir Skagamenn.
Viktor og Vardic skoruðu sitt markið hvor fyrir ÍA í fyrri hálfleik áður en Aron Jóhannsson minnkaði muninn fyrir Aftureldingu í upphafi síðari hálfleiks.
Vardic kom Skagamönnum í 3:1 á 54. mínútu og Viktor skoraði fjórða mark Skagamanna úr vítaspyrnu á 74. mínútu.
Valgeir Árni Svansson minnkaði muninn fyrir Aftureldingu á 79. mínútu áður en Steinar Þorsteinsson innsiglaði sigur ÍA á 88. mínútu.
ÍA, KA og Afturelding eru öll með 3 stig en KA og Afturelding hafa bæði leikið tvo leiki hvort. Dalvík/Reynir er án stiga í neðsta sætinu en Leiknir úr Reykjavík og Víkingur úr Reykjavík mætast í fyrsta leik sínum í riðlinum á sunnudaginn kemur í Egilshöll.