„Munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ“

Vanda Sigurgeirsdóttir.
Vanda Sigurgeirsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vanda Sigurgeirsdóttir lætur af störfum sem formaður Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, á ársþingi sambandsins á morgun.

Vanda, sem er 58 ára gömul, tók við formannsembættinu í október árið 2021 eftir að Guðni Bergsson sagði af sér ásamt allri stjórn sambandsins eftir að sambandið var gagnrýnt fyrir bæði þöggun og meðvirkni með meintum gerendum innan sambandsins.

Vanda ritaði ávarp formanns í árskýrslu sambandsins sem birtist á heimasíðu KSÍ gær en í ávarpinu kemur meðal annars fram að það hafi munað hársbreidd að Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA tæki yfir starfssemi KSÍ í kjölfar þess að Guðni Bergsson sagði af sér.

Verkefnið var ærið

Haustið 2021 tók við að mestu ný stjórn og ég sem nýr formaður. Verkefnið var ærið, við tókum við í mesta ólgusjó í sögu KSÍ,“ segir í ávarpi Vöndu.

„Við þurftum ekki aðeins að fást við málefni fótboltans, eins og stjórnir á undan okkur höfðu gert, heldur tókumst við einnig á við aðstæður sem ollu því að aðeins munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ.“ 

Vakin og sofin yfir verkefninu

„Fundir voru því margir og langir, við, ásamt starfsfólki KSÍ vorum vakin og sofin yfir verkefninu - sem fólst meðal annars í að bæta öryggi allra, búa til verkferla, koma á fræðslu, setja gerð nýrra siðareglna í gang, fara í samstarf með Barnaheillum og í leiðinni að koma okkur út úr storminum.

Þetta hefur tekist með gríðarlegri vinnu og fyrir þetta ber að þakka. Mig langar því að þakka af öllu mínu hjarta því fólki sem gaf kost á sér í stjórn, þegar enginn annar gerði það, þakka starfsfólki KSÍ fyrir þeirra ómetanlegu störf í þessu krefjandi verkefni og þakka núverandi stjórn fyrir afar farsælt samstarf gegnum þessa öldudali og yfir í nokkuð lygnan sjó,“ segir meðal annars í ávarpi Vöndu sem má lesa í heild sinni með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert