„Var ekki að fara að hringja í þá og biðja um samning“

Gylfi Þór Sigurðsson á æfingu með Val á þriðjudag.
Gylfi Þór Sigurðsson á æfingu með Val á þriðjudag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég er mjög spenntur að byrja að spila aftur,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið á Hlíðarenda í gær.

Gylfi Þór, sem er 34 ára gamall, skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning við Val og mun hann leika með liðinu á komandi keppnistímabili í Bestu deild karla.

Miðjumaðurinn lék síðast með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni en rifti samningi sínum í janúar á þessu ári.

Hann hefur dvalið á Spáni síðustu mánuði í endurhæfingu vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann frá því hann sneri aftur á knattspyrnuvöllinn með Lyngby í september á síðasta ári eftir rúmlega tveggja ára fjarveru.

Gylfi hefur leikið með Reading, Shrewsbury, Crewe, Hoffenheim, Swansea, Tottenham, Everton og Lyngby á atvinnumannaferlinum en er nú mættur aftur heim til Íslands eftir 19 ár í atvinnumennsku.

„Það er góð stemning í hópnum, ég þekki marga leikmenn hérna og hef spilað með þeim áður. Þetta er frábært félag, aðstaðan og æfingatímarnir eru til fyrirmyndar og þetta hentaði mér mjög vel á þessum tímapunkti. Þeir eru búnir að vera á eftir mér í einhvern tíma og ég fann virkilega að þeir höfðu áhuga á mér. Það var eitthvað sem sagði mér að skrifa undir á Hlíðarenda og það er gott að vera búinn að klára það,“ sagði Gylfi þegar hann var spurður af hverju hann hefði ákveðið að semja við Val.

Gylfi er uppalinn hjá FH í Hafnarfirði og lék líka með Breiðabliki í yngri flokkunum en hann hafði áður gefið það út að ef hann myndi spila aftur á Íslandi yrði það með uppeldisfélaginu í Hafnarfirði.

„Ég heyrði ekkert frá Breiðabliki á meðan FH-ingar buðu mér að koma á æfingar hjá sér. Bæði síðasta sumar og mér var einnig boðið með liðinu í æfingaferð til Spánar þar sem það er statt núna. Mér var hins vegar aldrei boðinn samningur hjá þessum félögum.

Ég var ekki alveg á þeim buxunum að fara að hringja beint í þá og biðja um samning en svona er þetta stundum. Ég bjóst ekki við því að spila aftur á Íslandi og ég bjóst ekki við því að spila með öðru félagi en FH á Íslandi en það gerast stundum óvæntir hlutir í þessu lífi.“

Viðtalið við Gylfa má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert