Þá er bara fyrsta sæti í boði

Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er markmiðið hjá félagi eins og Val,“ sagði Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals í fótbolta, í samtali við mbl.is eftir að liðinu var spáð Íslandsmeistaratitlinum af fyrirliðum, forráðamönnum og þjálfurum félaga Bestu deildar karla í fótbolta.

„Við viljum vera þarna uppi. Við vorum í öðru sæti í fyrra og við viljum gera betur og þá er bara fyrsta sæti í boði, bætti Hólmar við. Hann á von á spennandi toppbaráttu:

„Það hefur verið talað um að þetta verði jafnari deild og ég held það sé mikið til í því. Það hafa fleiri lið styrkt sig vel og verða eflaust að plokka stig hvert af öðru. Ég helt þetta verði spennandi mót og frábært fyrir hlutlausa,“ sagði Hólmar.

Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson. mbl.is/Eyþór Árnason

Engin meiðsli eru í herbúðum Vals rétt fyrir mót og er Hólmar bjartsýnn á gott gengi Valsara. „Við erum á betri stað en í fyrra. Það eru allir klárir. Við höfum æft vel í vetur og ég er bjartsýnn,“ sagði hann.

Hólmar er á leiðinni í sitt þriðja tímabil með Val, eftir farsælan atvinnumannaferil. Hann hefur aldrei unnið stóran titil á Íslandi og þyrstir í einn slíkan.

„Það er búið að vera markmiðið síðan ég kom heim og við höfum verið að færast nær. Það hafa verið bætingar frá ári til árs síðan ég kom til félagsins og við ætlum að halda því áfram,“ sagði Hólmar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert