„Fylkismenn eru í þeim fasa að þeir eru að reyna að festa sig í sessi í efstu deild,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþrótta hjá Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um Fylki.
Árbæingum er spáð 10. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í áttunda sætinu á síðustu leiktíð.
„Þeir björguðu sér frá falli í lokaumferðinni á síðustu leiktíð og hópurinn virðist vera veikari núna en í fyrra,“ sagði Víðir.
„Það er mikil hætta á því að þeir verði í vandræðum og ég hugsa að þeir yrðu sáttir við 10. sætið í ár.
Það er mikið af uppöldum leikmönnum í ár, með félagshjarta, og kannski verður það það sem fleytir þeim í það að halda velli í deildinni,“ sagði Víðir meðal annars.