„Ég veit ekki alveg hvar ég hef KA,“ sagði Aron Elvar Finnsson, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um KA.
KA er spáð 7. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í sjöunda sætinu á síðustu leiktíð.
„Mér finnst sjöunda sætið eðlileg spá fyrir þá en þeir gætu alveg farið ofar,“ sagði Aron Elvar.
„Þeir gætu líka farið neðar en þeir verða aldrei í fallbaráttu. Ef að KA-menn ná að koma Viðari Erni Kjartanssyni í stand og hann fer að skora mörk þá gæti það breytt öllu fyrir þá,“ sagði Aron Elvar meðal annars.