Tindastóll hafnar í níunda og næstneðsta sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is.
Tindastóll fékk 46 stig þegar atkvæði spámannanna voru lögð saman en þar voru gefin stig frá einu (fyrir 10. sætið) upp í tíu (fyrir fyrsta sætið). Fjórum stigum meira en Keflavík sem endaði í tíunda sætinu og þessum tveimur liðum er því spáð falli úr deildinni í haust.
Tindastóll lék í annað skipti í efstu deild á síðasta tímabili, eftir að hafa verið þar fyrst árið 2021, og náði sjöunda sæti eftir harða fallbaráttu. Þar með héldu Skagfirðingar sér uppi í fyrsta skipti og tryggðu það með stórsigri á ÍBV í lokaumferðinni, 7:1. Árið 2023 er því það besta í sögu Tindastóls.
Fjórir erlendir leikmenn sem voru í stórum hlutverkum í fyrra hafa yfirgefið Tindastól. Murielle Tiernan, sem hefur verið leiðtogi liðsins um árabil og skorað 98 mörk fyrir Skagfirðinga í deildakeppninni, er farin til Fram. Melissa Garcia, sem var næstmarkahæst á eftir Murielle í fyrra, fór til Póllands en þessar tvær skoruðu 14 af 24 mörkum liðsins í deildinni 2023.
Tveir bandarískir leikmenn eru komnir í staðinn og möguleikar Tindastóls velta því væntanlega á því hvort það sé nóg til að fylla í skörðin. Jordyn Rhodes er framherjinn sem á að leysa Murielle af hólmi.
Halldór Jón Sigurðsson þjálfar Tindastól og er sitt þriðja tímabil með liðið.
Komnar:
Jordyn Rhodes frá Bandaríkjunum
10.2. Gabrielle Johnson frá Bandaríkjunum
1.2. Sólveig Birta Eiðsdóttir frá KR (úr láni)
Farnar:
20.2. Murielle Tiernan í Fram
15.2. Rakel Sjöfn Stefánsdóttir í Dalvík/Reyni
13.2. Melissa Garcia í Bielsko-Biela (Póllandi)
9.2. Margrét Rún Stefánsdóttir í Gróttu
6.12. Beatriz Parra í Arezzo (Ítalíu)
6.12. Marta Perarnau í Arezzo (Ítalíu)
Fyrstu leikir Tindastóls:
21.4. Tindastóll - FH
27.4. Tindastóll - Breiðablik
3.5. Stjarnan - Tindastóll
9.5. Tindastóll - Fylkir
14.5. Valur - Tindastóll
Lokastaðan:
1 ??
2 ??
3 ??
4 ??
5 ??
6 ??
7 ??
8 ??
9 Tindastóll 46
10 Keflavík 42