Þróttur úr Reykjavík hafnar í fjórða sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is.
Þróttur fékk 140 stig þegar atkvæði spámannanna voru lögð saman en þar voru gefin stig frá einu (fyrir 10. sætið) upp í tíu (fyrir fyrsta sætið). Þróttarar eru fjórtán stigum fyrir ofan Þór/KA sem hafnaði í fimmta sætinu í spánni.
Þróttarkonur höfnuðu í þriðja sæti deildarinnar á síðasta tímabili og jöfnuðu með því sinn besta árangur en þær höfðu áður náð þriðja sætinu árið 2021. Það sama ár lék Þróttur jafnframt til úrslita í bikarkeppninni í fyrsta sinn. Árin frá 2020 eru besta skeiðið í sögu kvennaliðs Þróttar. Að undanskildum árunum 1972-1975 þegar leikið var í einni deild hafði Þróttur fram að því aldrei leikið meira en eitt ár í senn í efstu deild en liðið hefur verið í efri hluta deildarinnar frá 2020.
Þróttur teflir fram mikið breyttu liði en nokkrir burðarásar liðsins frá síðasta tímabili eru horfnir á braut. Katla Tryggvadóttir og Tanya Boychuk fóru til Svíþjóðar, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í Breiðablik og þær Katie Cousins og markvörðurinn reyndi Íris Dögg Gunnarsdóttir fóru í Val. Þróttarliðið teflir því fram nánast nýrri miðju og framlínu og miklu máli skiptir hvernig nýir erlendir leikmenn félagsins reynast. Þá fór þjálfarinn Nik Chamberlain til Breiðabliks en hann hefur stýrt uppbyggingunni hjá Þrótti frá árinu 2016.
Ólafur H. Kristjánsson tók við liði Þróttar af Nik Chamberlain fyrir þetta tímabil.
Komnar:
8.3. Sigríður Th. Guðmundsdóttir frá Val
23.2. Leah Maryann Pais frá Kanada
22.2. Mollee Swift frá Bandaríkjunum
20.2. Caroline Murray frá Næstved (Danmörku)
Farnar:
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í Breiðablik
12.3. Tanya Boychuk í Vittsjö (Svíþjóð)
5.3. Katla Tryggvadóttir í Kristianstad (Svíþjóð)
13.2. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir í Gróttu
9.2. Íris Dögg Gunnarsdóttir í Val
1.2. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir í spænskt félag
1.2. Katie Cousins í Breiðablik
Fyrstu leikir Þróttar
22.4. Fylkir - Þróttur R.
27.4. Þróttur R. - Valur
2.5. Þór/KA - Þróttur R.
8.5. FH - Þróttur R.
15.5. Þróttur R. - Víkingur R.
Lokastaðan:
1 ??
2 ??
3 ??
4 Þróttur R. 140
5 Þór/KA 126
6 Víkingur R. 103
7 FH 103
8 Fylkir 47
9 Tindastóll 46
10 Keflavík 42