Breiðablik hafnar í öðru sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is.
Breiðablik fékk 193 stig þegar atkvæði spámannanna voru lögð saman en þar voru gefin stig frá einu (fyrir 10. sætið) upp í tíu (fyrir fyrsta sætið). Blikakonur eru 42 stigum fyrir ofan Stjörnuna sem hafnaði í þriðja sætinu í spánni.
Breiðablik hafnaði í öðru sæti deildarinnar 2023 og náði því af Stjörnunni með sigri á meisturum Vals í lokaumferðinni á meðan Stjarnan tapaði fyrir Þrótti. Breiðablik fékk líka silfurverðlaun í bikarkeppninni eftir óvænt tap gegn Víkingi í úrslitaleiknum. Breiðablik hefur orðið Íslandsmeistari oftast allra kvennaliða, 18 sinnum, og vann titilinn síðast árið 2020. Félagið varð bikarmeistari í þrettánda skipti árið 2021. Kópavogsfélagið hefur aðeins einu sinni á síðustu tíu árum endað neðar en í öðru sæti.
Talsverðar breytingar hafa orðið á liði Breiðabliks frá því í fyrra. Taylor Ziemer og Bergþóra Sól Ásmundsdóttir fóru áður en tímabilinu lauk, Hafrún Rakel Halldórsdóttir fór til Danmerkur. Linli Tu heim til Kína og bandaríski varnarmaðurinn Toni Pressley fór í Aftureldingu. Landsliðskonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er komin frá Þrótti og þær Barbára Sól Gísladóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir, Heiða Ragney Viðarsdóttir og Anna Nurmi hafa allar bæst við auk þess sem yngri leikmenn hafa snúið heim úr láni.
Nik Chamberlain tók við þjálfun Breiðabliks í vetur en hann hefur þjálfað Þrótt í Reykjavík frá 2016.
Komnar:
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir frá Þrótti R.
19.2. Jakobína Hjörvarsdóttir frá Þór/KA
8.2. Barbára Sól Gísladóttir frá Selfossi
2.2. Anna Nurmi frá Åland United (Finnlandi)
1.2. Heiða Ragney Viðarsdóttir frá Stjörnunni
1.2. Margrét Lea Gísladóttir frá Keflavík (úr láni)
1.2. Mikaela Nótt Pétursdóttir frá Keflavík (úr láni)
Farnar:
25.3. Toni Pressley í Aftureldingu
26.2. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir í Fram (lán)
22.2. Olga Ingibjörg Einarsdóttir í HK (lán)
3.2. Helena Ósk Hálfdánardóttir í Val
1.2. Linli Tu í Keflavík (úr láni)
1.2. Valgerður Ósk Valsdóttir í FH (úr láni)
30.1. Hafrún Rakel Halldórsdóttir í Bröndby (Danmörku)
Fyrstu leikir Breiðabliks:
22.4. Breiðablik - Keflavík
27.4. Tindastóll - Breiðablik
3.5. Breiðablik - FH
8.5. Breiðablik - Stjarnan
15.5. Fylkir - Breiðablik
Lokastaðan:
1 ??
2 Breiðablik 193
3 Stjarnan 151
4 Þróttur R. 140
5 Þór/KA 126
6 Víkingur R. 103
7 FH 103
8 Fylkir 47
9 Tindastóll 46
10 Keflavík 42