Völlur Tindastóls á floti og frestað

Heimavöllur Tindastóls er á floti
Heimavöllur Tindastóls er á floti Ljósmynd/Ómar Bragi/Feykir

Mikill vatnsflaumur gekk yfir íþróttasvæði Tindastóls í dag og fótboltavöllurinn er á floti. Völlurinn er ekki leikfær og því hefur leik Tindastóls og FH sem átti að fara fram á morgun í Bestu deild kvenna verið frestað.

Töluverður snjór var í Skagafirði en í dag snögghitnaði í veðri, samkvæmt Feykir.is. Veðurstofan hafði varað við leysingum og íþróttasvæði Tindastóls fór að miklu leyti undir vatn.

Ekki hefur verið ákveðið hvenær leikurinn fer fram.

Feykir

Halldór Jón SIgurðsson, Donni, þjálfari Tindastóls varð að játa sig …
Halldór Jón SIgurðsson, Donni, þjálfari Tindastóls varð að játa sig sigraðan gagnvart nátturuöflunum. Ljósmynd/Ómar Bragi/Feykir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert