„Ég held að hann sé eini maðurinn sem gæti haldið þeim uppi með þennan hóp,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, aðstoðarþjálfari U23-ára landsliðs kvenna, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Tindastól.
Tindastól er spáð 9. sæti deildarinnar og falli í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
„Þessi staður skiptir hann máli og hefur mikla þýðingu fyrir hann,“ sagði Bára Kristbjörg.
„Að missa Murielle Tiernan er mikil blóðtaka fyrir þær og ég held að þær þurfi að styrkja sig eitthvað,“ sagði Bára Kristbjörg meðal annars.