„Ef þeim gengur vel þá er það frábært en maður spyr sig með þessa viðbót hvort þetta sé nóg,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarmaður Bestu markanna, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Fylki.
Fylki er spáð 8. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og er nýliði í efstu deild.
„Gunnar Magnús Jónsson hefur reynslu af því að vera í botnbaráttu,“ sagði Helena.
„Hann hefur reddað sínum liðum vinstri hægri í gegnum tíðina og af hverju ætti hann ekki að geta gert það núna,“ sagði Helena meðal annars.