„Þetta var mjög skrítin tímasetning og það er sérstakt, ef það voru einhver vandamál, að þau hafi ekki verið tækluð fyrr,“ sagði Þóra Björg Helgadóttir, fyrrverandi fyrirliði kvennalandsliðsins, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Víking úr Reykjavík.
Víkingum er spáð 6. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í fyrsta sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og er nýliði í ár.
„Ég trúi því samt að svona ákvarðanir séu bestar fyrir alla aðila,“ sagði Þóra Björg.
„Ég er því á því að þær muni ekki sakna Nadíu og það er engin sérstök ástæða fyrir því. Af einhverri ástæðu fór hún, henni leið þá ekki vel, og þá er ekkert gott sem kemur út úr því ef fólki líður ekki vel,“ sagði Þóra Björg meðal annars.