Fjölnir lagði Leikni að velli, 1:0, þegar Reykjavíkurfélögin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld.
Dagur Ingi Axelsson skoraði sigurmarkið á 28. mínútu og Fjölnismenn hafa því byrjað tímabilið vel því þeir unnu útisigur á Grindavík í fyrstu umferð og eru með sex stig eftir fyrstu tvo leikina.
Leiknismenn eru hins vegar án stiga en þeir töpuðu fyrir Njarðvík á heimavelli í fyrstu umferðinni.