Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir gegn Stjörnunni í framlengingu úr vítaspyrnu í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í fótbolta í Garðabænum í kvöld.
Staðan var 3:3 eftir venjulegan leiktíma en á 99. mínútu leiksins fékk Breiðablik vægast sagt ódýra vítaspyrnu.
Þá virtist Vigdís Lilja Kristjánsdóttir renna inn í teignum í baráttunni við Caitlin Cosme sem snerti hana varla. Bríet Bragadóttir dómari benti hins vegar á punktinn.
Staðan er enn 4:3 eftir 112 mínútur.
Víti? Dæmi hver fyrir sig. Það liggur í það minnsta enginn vafi á því að Agla María skoraði örugglega úr vítaspyrnunni! pic.twitter.com/tcFtuj89iT
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 19, 2024