Sandra María best í deildinni í apríl/maí

Sandra María Jessen skýtur að marki Tindastóls í sjöttu umferðinni …
Sandra María Jessen skýtur að marki Tindastóls í sjöttu umferðinni síðasta föstudag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Landsliðskonan Sandra María Jessen var besti leikmaður Bestu deildar kvenna í fótbolta í apríl og maí, í sex fyrstu umferðum deildarinnar, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins.

Sandra hefur farið einstaklega vel af stað á þessu Íslandsmóti en hún hefur þegar skorað tíu mörk fyrir Þór/KA í Bestu deildinni og er efst í M-gjöfinni með samtals átta M úr fyrstu sex leikjunum.

Sandra hefur fengið M í öllum sex leikjum Þórs/KA og einu sinni fékk hún hæstu einkunnina, þrjú M, fyrir frammistöðu sína gegn FH í annarri umferð. Hún er eini leikmaður deildarinnar sem hefur fengið þrjú M í leik á þessu tímabili.

Þór/KA hefur byrjað Íslandsmótið einstaklega vel en eftir tap í fyrsta leik gegn Val hefur liðið unnið síðustu fimm leiki sína og er komið í annað sæti deildarinnar.

Barbára í öðru sæti

Barbára Sól Gísladóttir, hægri bakvörður Breiðabliks, er í öðru sæti í M-gjöfinni en hún hefur fengið samtals 7 M fyrir sex leiki Kópavogsliðsins. Næstar á eftir koma síðan Amanda Andradóttir úr Val, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir úr Breiðabliki og Eva Rut Ásþórsdóttir úr Fylki en þær eru allar komnar með 6 M.

Nánar er fjallað um stöðuna í einkunnagjöf Morgunblaðsins í blaðinu í dag og þar er birt úrvalslið Morgunblaðsins fyrir apríl og maí.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert