Sveifla seint og um síðir í sigri Skagamanna á KR

Jón Gísli Eyland Gíslason með boltann í leik liðanna sumarið …
Jón Gísli Eyland Gíslason með boltann í leik liðanna sumarið 2022. mbl.is/Árni Sæberg

Þrátt fyrir fjör og færi í fínasta leik vantaði lengi vel mörkin þegar KR sótti ÍA heim á Skipaskagann í kvöld og í lokin skoruðu Skagamenn tvö mörk en ballið var ekki búið því KR-ingar náðu að minnka muninn í uppbótartíma en það dugði ekki til – ÍA vann 2:1.

Fjörið byrjaði fljótlega og Benóný Breki Andrésson átti góða skalla af stuttu færi en það var vel varið í horn.  Hinu megin fékk Viktor Jónsson gott færi stutt frá markinu en það var líka vel varið í horn.   Þetta var alveg í samræmi við leikinn því liðin skiptust á að gæta sín í vörninni og vera síðan snögg fram enda skapaði það oft usla. 

Á 20. mínútu kom síðan frábært færi Skagamanna þegar þeir spiluðu sig glæsilega upp hægri kantinn og boltinn var svo sendur út í teig en þrumuskot Jóns Gísla Eyland small í slánni.  Alveg frábær sókn með flottum sendingum sem KR-ingar gátu ekki komið í veg fyrir.

Það var líka hraði og sprettur eftir hlé nema hvað nú létu opnu færin á sér standa þó liðin  reyndu að ná þungum sóknum til skila færum.   Þegar leið á leikinn fór að örla á örvæntingu í sóknarleik beggja liða til að ná langþráðu marki. 

Á 85. mínútu gerðist eitthvað, Viktor Jónsson Skagamaður fékk boltann rétt utan við teig, lagði fyrir sig og skaut svo hnitmiðað niður í vinstra hornið, staðan 1:0.  Rétt á eftir skoraði Marco Vardic annað mark fyrir ÍA með skalla af stuttu færi þegar hann stóð upp úr í ati inni í markteig KR. Staðan 2:0.

KR-ingar hættu ekki, bættu í sóknina og Eyþór Wöhler minnkaði muninn í 2:1 í uppbótartíma þegar hann skoraði af stuttu færi eftir basl á marklínu Skagamanna.  Á síðustu mínútu í 5 mínútna uppbótartíma fékk KR svo horn og allir mættu á svæðið inn í vítateig heimamanna en ekki tókst að jafna.

Með sigrinum komst ÍA upp um eitt sæti, í það fjórða, og KR er enn í 8. sæti deildarinnar en í næstu umferð fara í Víkina til móts við Víkinga og Skagamenn fara í Kópavoginn til Breiðabliks.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

ÍA 2:1 KR opna loka
90. mín. + 5 í viðbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert