Langt ferðalag fyrir Val og Breiðablik – Stjarnan til Norður-Írlands

Breiðablik og Stjarnan taka þátt í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar …
Breiðablik og Stjarnan taka þátt í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. mbl.is/Eyþór Árnason

Valur mætir liði Vllaznia frá Albaníu og Breiðablik mætir Tikvesh frá Norður-Makedóníu í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla. Stjarnan mætir Linfield frá Norður-Írlandi.

Fyrri leikirnir fara fram 11. júlí og þeir síðari viku síðar.

Valur og Stjarnan byrja á heimavelli á meðan Breiðablik spilar fyrri leik sinn í Norður-Makedóníu.

Langt ferðalag bíður því bæði Vals og Breiðabliks á meðan Stjarnan fær stutt og laggott ferðalag.

Viðureignir íslensku liðanna:

Valur – Vllaznia

Stjarnan – Linfield

Tikvesh - Breiðablik

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert